In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Saturday, February 09, 2008

Vetrarhátíð

Svo sannarlega haldið uppá veturinn blessaðan. Með vind, roki og tilsskyldum party favors. 


er um þessar  mundir að byrja á nýrri mynd. Mun taka drullu langan tíma, eða lítur allaveganna þannig út, en það er svosum í lagi mín vegna. Skrítin að þessu leyti. Er til dæmis núna fyrst að sjá fyrir endann á einni mynd sem ég byrjaði á snemma árs 2007. Gaman að þessu. Auk þess sem hún er alveg helmingi minni en þessi sem er komin upp í glugga núna (á ekki tröur og nota því stofugluggann bara sem trönurnar mína) 

En já veðrið gott

datt bara hingað inn út frá google á einhvern dularfullann hátt. Lenti inní einhverri gamalli færslu frá 2006 og fannst hún svo bitur og svartsýn að ég ákvað að reyna að toppa hana haha

gef því nokkrar tilraunir í viðbót

Sunday, July 08, 2007

playahh

Playing Poker

Two couples were playing poker one evening. John accidentally dropped some cards on the floor. When he bent down under the table to pick them up, he noticed Bill's wife, Sue, wasn't wearing underwear!

Shocked by this, John upon trying to sit back up again, hit his head on the table and emerged red-faced. Later, John went to the kitchen to get some refreshments. Bill's wife followed and asked, "Did you see anything that you liked under there?" Surprised by her boldness, John courageously admitted that, well indeed he did.
She said, " Well, you can have it but it will cost you $500."
After taking a minute or two to assess the financial and moral costs of this offer, John confirms that he is interested. She tells him that since her husband Bill works Friday afternoons and as John doesn't, he should be at her house around 2 p.m. Friday afternoon.

When Friday rolled around John showed up at Bill's house at 2 p.m. sharp and after paying Sue the agreed sum of $500 they went to the bedroom and closed their transaction, as agreed.
John then quickly dressed and left.

As usual, Bill came home from work at 6 p.m. and upon entering the house, asked his wife abruptly. "Did John come by the house this afternoon?"
With a lump in her throat Sue answered "Why yes, he did stop by for a few minutes this afternoon."
Her heart nearly skipped a beat when her husband curtly asked, "And did he give you $500?" In terror she assumed that somehow he had found out and after mustering her best poker face, replied, "Well, yes, in fact he did give me $500".
Bill, with a satisfied look on his face, surprised his wife by saying, "Good I was hoping he did. John came by the office this morning and borrowed $500 from me. He promised me he'd stop by our house this afternoon on his way home and pay me back."
Now THAT, my friends, is a poker player !

Tuesday, June 26, 2007

INTERRAIL

vúúúhúúúú

umm meira af skemmtilegheitum. Er að fara að byrja í Myndlistarskóla Reykjavíkur núna þann 20asta ágúst. Missi nú reyndar af degi útaf ferðinni, en held að það verði nú allt í lagi. Hlakka líka svo andskoti mikið til, var farin að örvænta varðandi nám næsta vetur, er fegin að geta farið í skóla aftur og í þetta skiptið að gera það sem mig langar. Góð tilfinning.

Vinna með skólanum er aðeins meira vesen eflaust. Veit reyndar ekki hvernig stundaskráin verður en það gæti verið slungið að finna tíma til þess að púsla þessu saman ef tíminn er lítill. Hátúns vinnutíminn er auðvitað bara frá 9-17 svo ég þyrfti að koma einhvern veginn a´milli þessa tíma og bleblebleee

BORING nenni ekki að pæla í þessu strax, ætla að vera ýkt ánægð með að vera að fara til útlanda og að fara í skólann síðan. jeij

uuu já fréttir, hérna my life is boring, there you have it hahaha

Er komin með nýtt e-mail. karen.johannsdottir@hotmail.com bara svona ef einhver þarf að senda mér glötuð keðjubréf eða eitthvað í þeim dúrnum hehe..

bið annars að heilsa í bili og amms stundatafla ferðarinnar er í mótun hendi henni inn þegar ég er sátt með hana, og já búin að ná í skottið á svövu :)

later

Wednesday, May 23, 2007

þá er það klappað og klárt

Interrailið í sumar er klárlega á dagskránni.

Fljúgum út á laugardegi minnir mig og komum heim á mánudegi, er ekki alveg inní þessu, sveifa er að sjá um flugmiðamálin. Þau eru reyndar hætt að selja interrail kortin í gegnum exit.is og ég panikaði kannski í smá stund haha en það er hægt að kaupa það í gegnum einhverja úglenda síðu svo maður gengur bara í það
Við sumsé ætlum að byrja í Englandi og færa okkur þaðan til Skotlands og síðan til Írlands
líklegast, aftur til Englands í stutt stopp á leið okkar til Frakklands-Lúxemborg-Belgíu ooog svo fljúgum við heim frá Hollandi. Þetta er svona basically rúnturinn sem við tökum. Virkilega þægilegt, líka af því að þetta liggur hlið við hlið svo við þurfum ekki að eyða óendanlega löngum tíma í að fara frá svæði eitt til tvö.. ef systemið virkar ennþá þannig þá það er að segja. haha:S

U ég er alveg farin í bakinu. Það er böggandi. Fór til læknis sem sagði mér að ég væri með vöðvabólgu.. aftur. Ég er greinilega með króníska vöðvabólgu í bakinu or suhin or whatever. Við vorum allaveganna ekki að tala sama tungumálið þarna, ég og læknirinn. Hann mistúlkaði allt sem ég sagði og lét eins og ég vissi ekki hvað ég væri að segja. Fáránlega varð ég pirruð. Eins og ég viti ekki manna best hvernig verkirnir í mínum eigin líkama séu. uss ég var orðin rauð af bræði þarna. OG já hann fattaði það hahaha. Grínlaust mig langaði að skella einu velvöldum í smettið á honum. god bless him. Þetta er bara svo mikið bögg, ég er núna greinilega bólgin allan mjóhrygginn eftir því sem til dæmis svava best sér, og pabbi reyndar líka. Fæ verki sitt hvoru megin við hrygginn, en ekki í hrygginn sjálfan sem er gott. Upp allt bakið basically, mest samt í mjóhrygginn.
Þyrfti að læra að sitja eins og momo gerir víst, alltaf bein í baki.
Get ekkert unnið heldur á meðan ég er svona, svo ég er bara að hanga heima, horfa á sex and the city, aftur. Sörfa netið og svona ekkertnesss

Jú hef reyndar eitt sem ég get leitt hugann svona að mitt á milli, en það er sumsé útskriftarkjóllinn hennar nínu, hann gengur alveg virkilega vel. Hún útskrifast semsagt á föstudaginn svo ég er að fara að haltra út á eftir til þess að versla efni með henni, get þó stutt mig við hana. ég labba eins og gömul kona með skaft í borunni sko. Fór í 10-11 í gær og fékk mjög undarlega athygli sökum göngulags míns. Virkilega uhumm gaman.

En amms kjóllinn er allur að koma til og ég hef lúmskt gaman af þessu. Verst samt að þegar ég er að sníða þá þarf ég að láta mig svona síga á gólfið og koma mér í einhverja afkárlega stellingu áður en ég get íhugað það að fara að gera eitthvað. Öll skökk og skæld eitthvað

VÁ hvað þetta er uppörvandi færsla, hugsa að ég smelli annarri inn síðar. eða áður en langt um líður. Bið að heilsa ykkur-karen

Wednesday, May 02, 2007

Mesta vöruúrvalið

er í hagkaupum, ef einhver fékk nú ekki þeirra indælis bækling um daginn. Stenst auðveldlega samanburð við smærri tímarit og auglýsingabæklinga á borð við Marie Claire og Vouge. Klárlega.

Ég er alveg að verða gráhærð á manni nokkrum í Kastljósinu. Þetta er gaurinn úr Gettu betur. Hann er nú alveg þvílíkt mikið í fjölmiðlunum í kjölfar kosninganna og er það nú alveg skiljanlegt, en guð minn eini og góóóði hvað hann fer í mínar FÍNUSTU. Er ekki frá því að hann heiti Sigmar. Man það samt ekki alveg. Hann er svo óendalega ásakandi við alla sína viðmælendur. Sem er kannski eðlilegt eða eitthvað í íslensku fréttaefni, en grínlaust hann hendir síííífellt fram einhverjum spurningum í ásakandi tón. Reynir að kjaftstoppa viðmælanda sinn og svo þegar að það tekst ekki eða hann fær ekki svarið sem hann vildi fá þá spyr hann aftur.. og aftur Í ALVÖRUNNI. Hann var að reyna að fá Ingibjörgu Sólrúnu áðan til þess að hafa skoðun á skítnum sem umhverfisráðherra er búin að maka sig út í og Ingibjörg benti honum góðlátlega á að það væri ekki hennar að setjast í dómarasætið varðandi málefni sem hún þekkti ekki allar hliðar á. Eðlilega annað væri barnslegur hroki. Samt hélt gaurinn áfram. Hann spurði hana ÞRISVAR, gauuuur. og þegar hann var búinn að spyrja í síðasta skiptið (af ÞREMUR) hélt hann pennanum ógnandi á lofti eins og máli sínu til áherslu. Mér líður alltaf svo kjánalega þegar að hann er í sjónvarpinu. Það er eins og gaurinn haldi að hann sé hinn næsti Larry King, leiðrétting, LArry king er viðkunnalegur náungi. Hann er það ekki. Og þó, get reyndar lítið um það sagt það sem ég þekki hann ekkert. En það sem ég þekki til hans úr sjónvarpi er pirrandi. Pabbi er farinn að hætta að nenna að mótmæla mér þegar ég tjái mig í hvert skipti sem andlitið á honum birtist á skjánum. HAHAHAHAH hann bara kinkar kolli. Og þar sem mér finnst gaurinn vera bögg sé ég enga ástæðu til að sitja á því

my opinion on the subject

-amen

ummm lítið að frétta svosum. slow weekend. er ekki að nenna einhverju skralli þessa dagana. Er að vonast til að detta inn í tiltektar fíling á næstu mínútum, right like thats gonna happend. en já það er svona það mesta.

Ég og sveifan mín kæra förum nú bráðlega að huga að flugmiðakaupum fyrir Interrail skrallið okkar. Kominn smá fiðringur í mann varðandi ferðina. Þetta verður klárlega stuð.

daddaraaaa ætla að segja þetta gott í bili. og já hey MOMO, SÍÐBÚIN AFMÆLISKVEÐJA, VÚHÚÚ ÞRÍTUG SMÁSTELPA, LÍST LJÓMANDI VEL Á. OR SUHIN, KNÚS, KAREN

thats it folks

Thursday, April 19, 2007

RIP Rósenberg

bruninn svakalegur. allt lokað allt kreisí.

parís var grrrreat

nennekki að skrifa neittnúna. þetta er svona I´M ALIVE dæmi hahahhahah

write later, karen kalikula

Tuesday, March 27, 2007

5 apríl...

...er ég á leiðinni til fokking Parísar með Ninacion

more later