In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Friday, December 31, 2004

gamlárskveld.

reyndar bara gamlársdagur enn sem komið er en styttist í kvöldið. er aðeins að net nördast um þessar mundir. skrapp inná spámanninn og dró spil fyrir nýja árið. hversu áreiðanlegt sem það kann að vera.

Bikarriddari
Persónuleiki
Hann er oft á tíðum viðkvæmur en hugmyndaríkur þó þar sem rómantíkin ríkir. Uppfinningasamur og passífur gagnvart þeim sem hann elskar. Áhrifagjarn kann hann að vera en fer leynt með drauma sína og þrár í stað þess að framkvæma eigin langanir. Hans koma í líf þitt opnar dyrnar að mikilfenglegum tækifærum og þá sér í lagi af rómantísku tagi.
Aðstæður
Þú veist hvað þú vilt um þessar mundir og metur sömu hreinskiptni hjá elskhuga þínum mikils. Þú ert reiðubúin/n að stilla saman strengi ykkar hér en jafn reiðubúin/n að leyfa sjálfinu og ekki síður félaga þínum að spila sitt eigið lag. Í þínum huga er samband samruni tveggja jafningja en þú upplifir góðar tilfinningar hér og leyfir félaga þínum að elska þig án nokkurra skilmála
er alveg að fara að ljúka lestri bókarinnar HEPPIN eftir alice sebold. get ekki sagt annað en að hún sé rithöfundur að mínu skapi, ótengt að vissu leyti efninu sem hún skrifar um...svo fögur bein t.d. heldur kann ég mjög vel við frásagnarhætti hennar. kaldhæðinn húmor. meðvituð um sjálfa sig og stöðu sína-í bókinni...GLÆSILEGT. fílana.
næsta bókin á dagskránni er bók emmanúels. hef reyndar nokkrum sinnum gluggað í þetta hjá mömmu, en fékk þó þetta eintak hjá nínu... semsagt emmanúel´s...the man
stjörnuspá dagsins í dag hjá kareni krabba:
Krabbinn (22.júní - 22.júlí)Þú ert fær um að upplifa og njóta aðstæðna og skynja tilveru þína á réttan máta. Það birtast töfrar hérna þegar stjarna krabbans er skoðuð og það í jákvæðum skilningi. Þér er samt sem áður ráðlagt að hugsa í meira mæli áður en þú framkvæmir. Einnig er komið inn á að fólk fætt undir stjörnu krabbans mætti temja sér þolinmæði í meira mæli í byrjun árs 2005. Mikilvægt skref í því að breyta hugsunarhætti þínum er hugleiðsla sem gæti auðveldað þér að ná þeim árangri sem þú sættir þig við.
jæja nýja árið virðist ekki beint ætla að koma með neinum látum. ætla að fá me´r hlkaup og bíða róleg eftir því með góðu fólki.

Sunday, December 26, 2004

ljúfa líf??

þessi flóð í asíu eru alveg hreint skelfileg. ekkert annað sem hægt er að segja. var að skoða myndir af þessu og bara. vá
marí deildi því með mér áðan að hana hefði dreymt þetta. áður en þetta var komið í fréttirnar. hún semsagt sá þetta fyrir. shhiiiit. hún verður alveg hreint skrítnari með aldrinum segi ekki annað. Ég bara veit ekki hvort maður á að finna til samúðar eða þakklætis. það er að segja guði sé lof fyrir það að þetta séu þau en ekki við?? en um leið finnur maður til samúðar, sem manni finnst ekki eiga rétt á sér. ég meina við vitum í rauninni ekkert hvað þetta fólk-syrgjendurnir- eru að ganga í gegnum um þessar mundir, eða hvað?
býst við að ég sé að velta fyrir mér hlutum sem ég get í rauninni ekkert sagt um... ok. ég er hætt

pæling: ætti mar að skella sér í bíó í kvöld?? oceans 12 er mjög ofarlega á óskalistanum. nenni því samt svona eiginlega ekki. mig langar mest að leggjast undir sæng og lesa, bók sem nína lánaði mér í gær: bók emmanúels, mjög áhugaverð lesning og hún situr virkilega í manni. hef gluggað í hana áður. en eins og nína sagði þá er nauðsynlegt að lesa hana aftur til að gera sér betur grein fyrir inntaki hennar.

semsagt. lestur bíó eða þunglyndi til stuðnings asíubúum..? þetta er erfitt líf sem við lifum, ljúfa líf?

Saturday, December 25, 2004

do we know its christmas time at all

það tók mig engan smá tíma að fatta almennilega hevrnig ég kæmist inná blogg setrið þar sem ég gæti skráð færslur. BUT i made it.
ÞEtta er auðvitað ekkert eðlilegt einu sinni á ári yfir svona mánaðartímabil. virðist fólk einfaldlega missa það. bókstaflega, kringlan og smárinn verða að risastórum félagsmiðstöðvum reykvíkinga. Ég er að vinna í kringlunni og segi það með réttu. Það verður allt brjálað. og í raun þá bætir þetta ekki þann litla jólaanda sem til staðar er heldur hálfpartinn kremur hann til bana. ótrúlegir troðningar, peningaplot frá helvíti. oooh þetta fer bara svo ómótstæðilega í taugarnar á mér.
SEMSAGT Jólin. ekki beint minn tími. hef aldrei verið neitt sérstaklega mikið jólabarn. Lýsir sér eflaust vel í óskipulagi mínu. Á sjálfan aðfangadag var ég ekki búin að versla allar gjafirnar og kláraði jólainnkaupin semsagt ekki fyrr en uppúr hálf eitt. lokar ekki allt um eitt eða tvö?? semsagt ég var á góðum tíma. svo þurfti að keyra allt pakkaflóðið út um hálfan bæinn..sjaldan skemmt mér jafn vel..uns heim var komið um þrjú leytið. sturta og svo beint í mat hjá marí og co. sem var ekkert nema góður. Held að ég hafi sjaldan borðað jafn mikið í einu. þannig að svona er yfirleitt aðfangadagur hjá mér. stress og svo léttir. Held ég þekki ekki öðruvísi jól nú þegar ég pæli í því.
Jóladagur. jahhá. nýtti mér frídaginn og svaf yfir hádegi...ummm. vaknaði við yndislega matarlykt og þá var allt til... hangikjet á borði. Ég og pabbi borðum alltaf bara heima á jóladaginn sjálfan. voða kósí. svo sat ég allan daginn og horfði á sjónvarpið. fyrst var það 102 dalmatíuhvolpar-mæli með henni, svo the GRINCH...who me? og svo glápti ég á einhevrja vellu á rúv þangað til ég stóð upp og hlustaði á diskana mína :D. semsagt brjálað að gera hjá kareni um jólin.
held þeim ljúki með stæl á eftir. Með svefni...úúú

Friday, December 24, 2004

take ooooooooone

testing. testing. 1 2 3