dúdúdúúúúú..... :D
er í alveg hreint massa góðu skapi. kom úr vinnunni áðan og smjellti mér fyrir framan tölvuna. fátt að fara að gerast um helgina hjá mér annað en vinna. eitt tveir bjórar kannski ef stemmningin er fyrir hendi:) en já lenti í því í vinnunni áðan að sóla var farin að reyna að múta mér til þess að vinna í skiptum fyrir áfengi(heila malibu flösku, ok JÁ ég veit...en samt. what happened to my MORAL VALUES -if i had any?!), semsagt THEN u know að þú ert þekkt fyllibytta. ætla að bæta ímynd mína hvað varðar drykkju, annað má bíða betri tíðar:)
hey gaman að minnast á það að betri æskuminningar mínar tengjast að mjög svo mörgu leyti elsku bestu hönnu og sesseljun og fleirum frábærum aðilum þarna úti. bara langaði að minnast á það því að ef það væri eitthvað sem gaman væri að gera þá er það svona mini reuinon hjá okkur klikkhausunum... who´s with me? heheheh
_-_ummm..... já alveg rétt skellti mér í klippingu í gær, og er ekkert smávegis sátt með útkomuna. Mæli hreinlega með Rauðhettu og úlfinum, 4600 fyrir klippinguna(soldið dýrt veit það) en þetta var alveg einn og hálfur tími eða eitthvað. er ekki vön einhverri svona special treatment, hárið var þvegið og blásið g sléttað svo blásið og spreyjað og gelað and i dont know what. hahaha var eins og einhver fokking amatör þarna. aumingja sæti krúttlega feimni gaurinn sem var að róta í hárinu á mér. og aumingja steffy sem beið eftir mér ALLAN tímann, skál hómí.
_-_Karen er komin aftur með topp, og það ekkert slæman topp heldur, eins og fyrr sagði þá er ég meira en lítið sátt. var fyrst eitthvað lengi að venjast en þegar að ég labbaði út af stofunni var ég sátt. spáið í því, það tók mig kannski svona þrjár mínútur að venjast þessu og svo var ég alveg bara "hey þetta er alveg geggjað flott". pæling pælinganna. (did this seem egoistic? hmmm maby it did...hmmm O WELL:P)
17 júní á Akureyri verður viðburðaríkur og er maður farin að frétta af mörgum sem hyggjast leggja leið sína þangað.
Bíladagar á Akureyri. mæli með þeim fyrir alla sem haldið geta höfði á lofti. eitthvað fyrir alla ár hvert, og þeir klikkuðu allaveganna ekki í fyrra. Ævintýri gerast enn vona ég. helvíti gaman væri að skella sér, en það er víst seinni tíma gaman. í fyrra var náttúrulega snilld, snilldin sem ég og stefanía lentum í, dansandi eins og motherfokkerar á einhverrri fjölskyldusamkomu, hent út af gistiheimilinu þannig að djammið hélt áfram með töskurnar á bakinu. HAHAHA. einhver miðaldra maður sem við gengum framhjá gaf okkur bjórinn sinn og lýsti yfir stolti sínu á gerðum okkar(?)og svo lá leiðin uppá tjaldstæðið þar sem fólkið var allt af vilja gert og jammið hélt að sjálfsögðu áfram. á endanum kom svo Reynir (hvítklæddi riddarinn hennar stefaníu ) og veitti fyllibyttunum húsaskjól, þetta er bara stutt "klipp" af ferðum okkar:):):). en já grínlaust þetta er snjelldin ein og mæli með að allir skelli sér norður. *highfivemate*
oki
held að þetta sé komið gott í bili þarf að mæta 9 í fyrramálið svolleis að ætla að skella mér aðeins út áður en háttatíminn rennur í garð. túdúls