In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Monday, August 29, 2005

kallinn er mættur og vel bættur

mánudagur til mæðu

þessi helgi mun seint líða úr minni mér sökum heimskupara og andskotans drykkjuláta af eigin hendi. HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ MÉR? sver það að ég verð að fara að reyna að ná svona pínu smá stjórn á þessu, já eða bara gera það sem inga ása benti mér svo vinsamlega á að væri ef til vill lausnin. hætta bara að drekka. ok jájájá alltaf auðvelt að segja svona á mæðandi mánudögum, sjáumst á fimmtudaginn blablabla.svona grínlaust samt þá held ég að karen þurfi að fara að hugsa sinn gang ef til vill, kannski eiginlega alveg örugglega.
En já þetta var nú bara svona smá útúrdúr

kjörsviðsverkefnið er að skera mig í eyrun þessa dagana. Langar að vera frumleg þegar að kemur að verkefninu en um leið það íhaldssöm að það hái mér ekki. u skiljing mig? VÁ það ætlar ekki að vera neitt smá erfitt að vera ég í dag. þessi endalausa bölsýni mun stúta mér einhvern daginn. HAHAHAH karen bölsýn, aight

en já með etta verkefni ég er allaveganna alveg pottþétt á því að tækla íslenskuna. einfaldlega af því að Halla getur þá hjálpað mér og svona og svo líka af því að hún er bara ýkt skemmtileg. amen. Þjóðsögurnar og öll þessi gömlu rit og uppruni íslenskra bómennta eru algerlega inná mínu áhugasviði. hey já og svo er annað sem ég varð pínu heilluð af í smá stund. Við megum skrifa okkar eigin ritverk svo sem skáldrit eða ljóð. ÝKT sniðugt :) eða það finnst mér í hið minnsta. en amms, einhverjar hugmyndir varðandi verkefnið endilega henda því inn.

ok. ætla að drulla mér í íþróttir, af því að þær gera me´r svo gott og bæta heilsu mína og sálu. *hósthóstkjaftæðihósthóst* taka það fram að þetta var reykingarhósti.

OVER AND OUT

Friday, August 26, 2005

skulebårn på kjenten

dæs.

sit á bókasafninu um þessar mundir og er að reyna að mana mig uppí það að fara og tala við sigurrósu. a.k.a. kjellingin sem sér um fögin sem nemendur sækja og eitthvað svona sjitt. kann ekki skilgreininguna algerlega. anywho. hún er ýkt importante manneskja sem ég er að vonast til að sjái aumur á mér og leyfi mér að fara í myndlist fremur en ljósmyndun. langar alveg í ljósmyndunina, reyndar alveg heilan helling. en veit sem er að það býr svo mikill kostnaður á bak við þetta sem ég er ekkert viss um að ég geti staðið undir. damn it. en já myndlistin á náttúrulega hug minn allan þannig að í raun er það hvorutveggja sem mig langar. ooooh hate this. þoli ekki þegar allt er ekki bara einfalt og fínt og flott á því. simmmmpleeee

ummmm tók mig til í gær og tók til í herberginu mínu. allur pakkinn tekinn á etta. það fyndna er að ég tek yfirleitt ekki til fyrr en bókstaflega allt er komið á hvolf þarna inni. sú var einmitt raunin í gær. so i did what i had to do. gotta do what you gotta do MAN. já og svo var ég eiginlega bara massa félagsskítur og húkti yfir lokaþættinum af THE SWAN. get svoleiðis svarið það. var nálægt því að skella uppúr oft á stundum. mér finnst þetta bara eitthvað svo skomdið allt saman. konur, sem yfirleitt eru, í yfirvigt með illilega skemmt sjálfsálit. talandi um það hversu vel breytingin hefur komið hugarfari þeirra samt lag og sjálfsálitinu í rétt horf og hvað lífið bíði þeirra BLABLABLA. hef reyndar ekkert á móti svona dæmum en hef á hinn bóginn allt í móti þeim ímyndum sem blasa við okkur í sjónvarpi og öllum fjölmiðlum og gera það að verkum að fólk telur sig knúið til að gera þetta. BULL segi ég bara. ok, ýkt tuggin tugga en samt. JUST HAD TO SAY IT.

skil ekki fólk sem lifir lífinu sem gæti verið svo æðislegt með röngu hugarfari bara af því að það kemst upp með það óáreitt. ætti að flengja úr þessu liði heimskuna í eitt skipti fyrir öll

Karen Björg Jóhannsdóttir (formlegt huh?!:D)

Wednesday, August 24, 2005

bling bling beibe

var sótt í dag af gunna og steffú á þessu líka FALLEGA FARARTÆKI. a la porche á kantinum. þjálfari gunna lánaði honum bílinn og var tjallinn bara gangandi rúntari frá tíu um morguninn til tvö seinna um daginn. varla þarf nú að taka það fram að komið var víst við á öllum þeim stöðum sem hægt var að koma við á til að sýna kvikindið. DÆÆÆÆS. við erum að tala um kraftmikið ferlíki. shiiiiiiiiiit.

en já er tiltölulega nýkomin heim úr skólanum. það er rétt byrjaði aftur í morgun. þetta var reyndar allt í lagi í sjálfu sér. Er með fínan kennara í mannfræði og líst vel á námsáætlunina , en annars er kennarahópurinn bara fínn. Halla sem var að kenna mér í fyrsta bekk íslenskuna er mætt aftur. æði
hahaha hún kannaðist við mig síðan í fyrsta bekk.
"tiiinna..?"
"ha, neineinei karen"
"jááá alveg rétt Karen. þú varst í aftur. B-bekk.
haaaa.... þið voruð ansi skrautlegur hópur" brosir útundan sér er hún segir síðustu orðin

HAHAHAHA allir litu á mig eins og ég hefði eitthvað representað þennan hóp eða eitthvað.
en það er jú hægt að segja að hún hafi haft rétt fyrir sér. 1-B var helvíti asskoti skrautlegur. þarna var hægt að finna allar sortir þegar að kemur að flóru ungmenna í menntaskólum. ég og steffý vorum agndofa þegar að við gengum inn í stofuna. gothar, rokkarar, lúðar, meikdollur, bílanördin og djammararnir, hahaha og svo vorum það við steffy. durgarnir á pleisinu. En þetta er í rauninni það sem þetta snýst allt saman um. Menntó þ.e.a.s.
( ok, kannski var þetta svona pínu "had to be there" moment )
snelld, ekkert annað en snelld.

ætla að reyna að skella mér á bókasafnið eftir eina skamma. vera soldið dugleg og koma mér af stað strax, námslega séð. sjálfstætt fólk bíður mín líka. ómældur ánægjuhrollur sem fór upp hrygginn þarna. ég og laxness náttlega svo kreisí góðir vinir....hrmpf. nehhh segi svona mar verður víst að líta þetta bjartsýnisaugum, annað er ekki hægt

eitt ár eftir! eitt ár eftir! huhumm vonandi allaveganna
hlakka til að geta gert það sem mig langar. hlakka svo mikið til að mig kitlar í fingurna (bókstaflega;P)

Tuesday, August 23, 2005

anywho

deijinn og veginn lömbin mín ljúfu.

nína kom heim áðan. VELKOMIN HEIM NÍNA!. tjettlingurinn var að ljúka tveggja vikna interrail ferðalagi og erum við að setja planið á eitt stykke kaffihúsafíling. catching up and all datt shit. sjibbí. er alveg ýkt eigingjarnt af manni að vera ógeðslega ánægður að fá hana heim aftur? ég meina ég fæ alltaf svona smá bank í hausinn frá sjálfri mér þegar að ég geri þetta. alveg ósjálfrátt samt. pæling. dæs

enn einn tilbreytingarlaus dagur í lífi mínu. skrapp í eymundsson áðan og verslaði nokkrar bækur. fjórar nánar tiltekið og kostuðu herlegheitin rétt yfir tíu þúsundum. shocking. ekkert smávegis mikið bögg að vera ekki á bíl. verslaði allt í griffli í fyrra og grínlaust þá var í farin að gráta þegar að ég gerði mér grein fyrir verðmuninum. ok ekki beint gráta en er samt ekki frá því að glitt hafi í nokkur tár, kannski ekki mörg en ... OK ANYWHO

umm kíkti á arndísi í vinnuna áðan. stelpurassgatið er blátt og marið, enn einu sinni. sver það hún ætti varla að fá að fara á jammið . alltaf öll krambúleruð og sæt og fín, er ekki til neinn svona svartur listi eða eitthvað? pæling

skólinn byrjar á mooooorguuuuuun. dæs. mar er nú varla að nenna þessu kjaftæði. ég þoli ekki að vera ekki búin með bóka innkaupin áður en skólinn byrjar þannig að upphaf þessa skólaárs er ekkert sérstaklega velkomið. æ fokk itt mar. redda essu um mánaðarmótin. EINMITT það er svona hugarfar sem ég þoli ekki "#%$&

steffý ætlar að halda upp á 19 ára afmælið sitt um næstu helgi. karen er búin að redda gjöfinni og alles. WUNDERBRA

freðinn friður. lambakjuntan á kjantinum kvjeður. pís

Monday, August 22, 2005

jæja nú jæja

BÚIN AÐ VINNA. dadadraaaaaaa

næst tekur ekkert við nema gamli góði skólinn. fékk frí í dag júhú
bara sátt. kom heim úr vinnunni í gær um sex leytið, lagðist uppí rúm og vaknaði klukkan korter yfir tíu í morgun. þetter er ekkert eðlilegt er það nokkuð hmmm? :) anywho

er að sörfa netið og kynna mér stundaskrána mína bókalistann og annað álíka shit. ok. óvíst er að nokkur annar en steffy fatti þetta: ÉG ER MEÐ FOKKING MONIKU BLÖNDAL Í ÞÝSKU.
guð er ekki góður. guð er ekki og þá meina ég EKKI góður.
fjúúúúff anda karen anda

en að öðru leyti er ég svona semi sátt

já var eitthvað ekki að nenna þessu blogg dæmi í sumar. held að þetta "feis" sé liðið núna. vona kannski smá pínu aha je men

ummmm þetta er búið að vera örugglega leiðinlegasta sumarfrí frá upphafi. nákvæmlega ekkert búið að gerast. jú nema þá að ég fór ó Skóga um verslunarmannahelgina. löng en góð saga. segi hana seinna;);) ummmmm já. held hreinlega að ég hafi ekki gert neitt annað skemmtilegt

ok. er um þessar mundir að átta mig á því hversu innihaldslaust líf mitt hefur verið undanfarna þrjá mánuði. hyggst taka smá stund í að vorkenna sjálfri mér. (hommmm hommmm hommm)
ok. DONE

í dag ætla ég að.... vá hef ekkert að gera eða segja. blogga seinna þegar að það liggur kannski aðeins betur á mér

! sykur úti friðalingar ! :D:D:D