kallinn er mættur og vel bættur
mánudagur til mæðu
þessi helgi mun seint líða úr minni mér sökum heimskupara og andskotans drykkjuláta af eigin hendi. HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ MÉR? sver það að ég verð að fara að reyna að ná svona pínu smá stjórn á þessu, já eða bara gera það sem inga ása benti mér svo vinsamlega á að væri ef til vill lausnin. hætta bara að drekka. ok jájájá alltaf auðvelt að segja svona á mæðandi mánudögum, sjáumst á fimmtudaginn blablabla.svona grínlaust samt þá held ég að karen þurfi að fara að hugsa sinn gang ef til vill, kannski eiginlega alveg örugglega.
En já þetta var nú bara svona smá útúrdúr
kjörsviðsverkefnið er að skera mig í eyrun þessa dagana. Langar að vera frumleg þegar að kemur að verkefninu en um leið það íhaldssöm að það hái mér ekki. u skiljing mig? VÁ það ætlar ekki að vera neitt smá erfitt að vera ég í dag. þessi endalausa bölsýni mun stúta mér einhvern daginn. HAHAHAH karen bölsýn, aight
en já með etta verkefni ég er allaveganna alveg pottþétt á því að tækla íslenskuna. einfaldlega af því að Halla getur þá hjálpað mér og svona og svo líka af því að hún er bara ýkt skemmtileg. amen. Þjóðsögurnar og öll þessi gömlu rit og uppruni íslenskra bómennta eru algerlega inná mínu áhugasviði. hey já og svo er annað sem ég varð pínu heilluð af í smá stund. Við megum skrifa okkar eigin ritverk svo sem skáldrit eða ljóð. ÝKT sniðugt :) eða það finnst mér í hið minnsta. en amms, einhverjar hugmyndir varðandi verkefnið endilega henda því inn.
ok. ætla að drulla mér í íþróttir, af því að þær gera me´r svo gott og bæta heilsu mína og sálu. *hósthóstkjaftæðihósthóst* taka það fram að þetta var reykingarhósti.
OVER AND OUT


2 Comments:
æjæjæjæjæææ karen mín!
ég skil hvernig þér líður!!! verðuru edrú memmér næstu helgi????
2 late for that man
hehehe. en amms. edrúisminn aldrei virkað betur. sá tími mun koma trúðu mér ljúfan
(what the fuck am i babbling here??)...ok tek fram að þetta er gert undir sterkum áhrifum þynnku
over and out
Post a Comment
<< Home