In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Wednesday, November 30, 2005

Samræmdu stúdentsprófin

eru brandari. í einu orði

fór í eitt slíkt í dag. Tók það nú reyndar, í stað þess að mótmæla og skila inn auðu. veitikki. ég er eflaust ekki nógu mikill rebel til þess að standa í svona aðgerðum. Auk þess sem mér finnst eins og það séu alltof skiptar skoðanir um gildi þessa prófa núna og svo auðvitað varðandi framtíðina. Sure, þau gilda ekkert núna og munu eflaust ekki gera, en ég meina mig langar kannski að komast í Háskóla af einhverju tagi úti og þar af leiðandi vil ég ekki draga úr möguleikum mínum á erlendri grundu útaf pólitískum aðgerðum hérna heima sem fólk utanlands er ómeðvitað um.

My opinion. Auk þess sem mér finnst ekki það mikið álag á okkur í skólanum mínum. Hellooo ég er að fara í 3 próf. MR er að fara í 9 próf. ÞAÐ skil ég að sé bögg að bæta tvemur við þessi 9 stykki takk fyrir kærlega.

Samt sem áður er ég algerlega á móti þessu, ekki miskilja mig, ég bara veit svo lítið um málið að ég vil ekki ganga fram með skoðanir annarra á bak við mig í stað minna eigin. Feel very strongly about that especially.

Þannig að já ég fór í samræmt próf í íslensku í morgun.

Svo fór ég niðrí bæ og tók svona smá coffee hour á etta með nínu.

Svo fór ég heim í þeim tilgangi að taka til inni hjá mér.....o já þið vitið hvernig getur verið með góða viljann sem er alltaf til staðar en virðist síðan fjúka út um gluggann um leið og maður þarf mest á honum að hlda. Já semsagt ég er ekki búin að taka til inní herbiggi. ---en hey ég er samt komin nokkuð vel af stað;) öll fötin farin af gólfinu og sonna. god damn æm gúdd

karen the real grinch has returned.

nei svona í alvörunni. Veit ekki hvað það er við jólin, en ég virkilega þoli þau ekki. Allir verða svo körreisí eitthvað. SVER það að ég hlýt að hafa skrifað alveg nákvæmlega sömu setningu fyrir rúmu ári síðan. Ef ekki þá er hún hér.

AMERICAS NEXT TOP MODEL. eruði að pæla í þessu. only threeeeee left to go. Karen myndi naga neglurnar ef hún hefði einhverja löngun til þess lengur.

oki ætla að halda áfram í free cell leiknum. geggjað stuð. bið að heilsa ykkur!

allir að taka frá 7. janúar!!!!!!!!! mjög mikilvægt.

Tuesday, November 29, 2005

...

HÆ MÚS;)

Monday, November 28, 2005

SigurRós

VÁ!
og Á. ég stóð í heila tvo tíma og undir lokin var ég hætt að geta fylgst með tónleikunum sökum sársauka. frekar leiðinlegt.
en samt sem áður þá á ég aðeins eitt orð
VÁ!

fór í Kolaportið í gær einnig. ég nína og árni tókum einhvern óskipulagðan túr um pleisið. áorkuðum voða litlu reyndar. Kaffi hourinn skilaði sínu þó.

hver fylgdist með THE CUT þættinum? ammm súr þáttur. eða ekki. hef eiginlega enga skoðun á þessu. Elizabeth freakið þarna vann allaveganna ekki. *applause*

ég hlakka ekki til jólanna! (gisp!)

Fór á myndina þarna "the exorcism of Emily Rose" um daginn. aumingja árninn. Fyrst neitaði ég að viðurkenna það að mig langaði nú ekkert sérstaklega mikið að sjá hana. Svo komum við á myndina og ég sat í litla sætinu mínu með raisin rabbit heart sem virtist ætla að poppa útúr líkamanum. tala nú ekki um þegar það kom eitthvað $#%$ hlé!
stuttu máli sagt then it seemed like forever.
-------------------------------------------samt mjög góð mynd. Fríka samt ennþá út þegar ég sé auglýsinguna þó að ég sé búin að sjá myndina.

áhugavert.

Þarf að fara að byrja á god damn kjörsviðsverkefninu. 20 pages are waiting for me. Það furðulega er reyndar það að svo gott sem enginn er byrjaður á þessu nema duglega fólkið þarna. Og það eru tvær eða þrjár stelpur ef mér skjátlast ekki. je nó i´m not one of them

---TaKk---

Wednesday, November 23, 2005

einhver?

hefur einhver áhuga á mannfræðingi að nafni Haraldur Ólafsson, og skyldi kannski hafa kynnst sér eins og eitt tvö rannsóknarverkefni eftir hann?
ekki?
EKKI ÉG HELDUR.
djúpum skít djúpum skít djúpum skít

ég hefði nú alvge getað valið mér einhvern örlítið áhugaverðari ef ég á að vera hreinskilin.
svo þarf ég nú að fara að afla mér heimilda á stöðum eins og stúdentabóksölunni og uppí háskóla eða eitthvað (brrr...ég fæ hroll bara við tilhugsunina). hahahah ímynda sér og svo FER ég kannski einhvern tíma í skóla hins hámenntaða fólks.
já ef þar að kemur þá mun ég bera fyrir mig minnisleysi.

í dag ætla ég að....

  • fara á þjóðarbókhlöðuna og kynna mér hvað það kostar að fá kort hjá þeim
  • fara í bókabúðir í leit að efni fyrir verkefnið í mannfræði
  • kíkja í kaffi til nínu
  • ooooooog gera síðan ekkert þangað til ég fer að sofa

yes me and my innihaldsríka life.

fór í leikhús í gær að sjá verkið Blóðberg. Sýnt í loftkastalanum ýýýýýýýkt langt fyrir mig að labba alla leið(hóst). þetta var jahhhh langt. Minnti soldið á the bold and the beutiful því að í raun var þetta ekkert annað en leikið drama. kynlíf soldill vendipunktur við nánari íhugun. mar gat sosum hlegið hér og þar en þetta voru þrír tímar og að mínu mati hefði auðveldlega verið hægt að stytta þetta hér og þar.

always coca cola

Tuesday, November 22, 2005

einhverjar skoðanir á kantinum?

2
5

endilega deila því með beyglunni.

hmmmm...interresting


XIX - SólinÞú ert heillaður/heilluð hérna og verður ástfangin/n hratt. Þú getur um þessar mundir átt erfitt með að greina á milli langvarandi ástar og stundarhrifningar. Þú upplifir ástina hér af öllum mætti og tekur jafnvel sjálfið og eigin lífsgildi til algerrar endurskoðunar. Skynjun þín og tilfinningar eru fyllri og opnari á þessum tímapunkti í lífi þínu. Þegar þú ert ástfangin/n lærir þú að gefa ekki síður en að þiggja og ástin kennir þér að þarfir og tilfinningar annarra eru jafn mikilvægar og þínar eigin. Á sama tíma gætir þú lært að leyfa persónu þinni að blómstra þegar þú deilir lífi þínu með öðrum. Ekki gleyma kröfum þínum og leyfðu þér að bera fram óskir þínar með því að setja meðvitað af stað svokallað orkusvið hins ótakmarkaða samræmis því að viljaásetningur þinn leggur grunninn að átakalausu flæði sem eflir hjartastöðvar þínar á mjög öflugan máta.

nína smitaði mig af einhverju kvef drasli

þar af leiðandi eru fá önnur hljóðin sem koma uppúr mér hósti eða svona horsog aþþþí ég er svo stífluð. falleg lýsing i know. en svo er ég líka alveg hreint sjúúúklega þútin í kringum augun og er auðvitað sannfærðum að það er bara tengt þessu veikinda helvíti which seems to be haunting me.

Það er nún búið að setja fyrir alveg HRYLLILEGT verkefni í mannfræði. ok kannski ekki hryllilegt, hugsa reyndar að það gæti verið soldið áhugavert. En akkúrat í þessum töluðu veikinda orðum þá sé ég bara svo gott sem engan ljósan blett í myrkrinu, hvað námið varðar fyrir hið minnsta.

nína fer út 15. er mjög ánægð fyrir hennar hönd, og í raun bara allra þeirra sem ætla að drulla sér af þessu skítapleisi yfir jólin. gleði ykkur til heiðurs. Ég er reyndar strax farin að kvíða jólunum (jebb the grinch is back). held að þetta verði bara eitt allsherjar hell. ætla að reyna að halda mig sem mest innandyra og baka bara eða eitthvað.

haha þau uppá nk. eru að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir það að ég hætti. ææææ dæs. thats. so. SWEET.
hahahahha

Ég og nína skelltum okkur á hinn hmmm what to say. skemmtilega held ég að virki bara. já anywho fórum á Babalú í gær. bara nett kósí pleis ef satt skal segja, höfðum nebblega aldrei farið þangað áður svo þetta var nokkurs koar general prufa á pleisið. og pleisið stóð sig, fengum okkur kaffi og ég safa og svo vorum við blaðrandi ég veit ekki hvað lengi. Árni kom síðan til okkar og þá náttlega sátum við enn lengur og ég held grínlaust að við höfum talað um allt sem hægt var að tala um. eeeevvvvveeeeerrrrryyyyyyttttthhhhhiiiiiinnnnnng. svo var ég eitthvað að reyna að vera listræn og fá að krota eitthvað á blaðið. semmátti ekki. mrs. sudoku fan var ekki að fíla þaaað. en já for further notice þá er það ungfrú nína sem er undisputed SUDOKU fan. hahahahahhahhaa. meaning she´s not:)

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Hér birtast öfgar en þessar umtöluðu öfgar geta talist flóttaleið þegar stjarna þín er skoðuð hér. Tækifæri bíður þín hinsvegar hérna og það krefst skilnings af þinni hálfu. Sýndu þína réttu hlið og vertu ávallt heil.

heimspeki bíður mín. gleði, gleði.
í dag skal lært
aðeins minni gleði gleði. meira svona vorkunn vorkunn.
veit einhver hvað það kostar að fá kort á þjóðarbókhlöðunni????????

Monday, November 21, 2005

Þetta var GEEEÐVEIKT

u gotta be fucking kidding me maaaaan. ég og nína gengum út í sæluvímu.

vorum orðnar svo sick asse spenntar áður þannig að það varð bara eikkað fokk stórt spennufall hér á kantinum.
svo eftir á þá náði nína (á einhvern óskiljanlegan hátt) að sannfæra mig um að það þyrfti að uppfylla einhverja "tra diti oon". sem fólst í því að fá sér eins og eitt stykki ís.
JÁ. eigum við eitthvað að vera að ræða haglélið sem demdi sér yfir mannskaapinn í gærkveld???
nei? ok. then. en já við fórum að fá okkur ís. og það var mucho bueno. tjanks for the icecream man:P

-mig langar í kaffi. right about nooow- en neineinei karen þarf alevg hreint NAUÐSYNLEGA að vera föst uppi í skóla. do nooot like it.

mig er allt í einu farið að langa miklu meira að reykja. vil það ekki, óbeint. en vil það samt mjög svo ómeðvitað. damn. slæm þróun hér á ferð!!! BUT. i WILL fight the evil forces, i WILL!

í daaaaag ætla ég að gera mitt besta til þess að skella þessu kjörsviðsdæmi af stað. bara eins miklu og ég mögulega kemst yfir. skila því vonandi á miðvikudaginn ef himinguðirnir standa með mér. svo er náttlega tímaritgerð á miðvikudaginn í þýsku. whats up with that? ooog svo man ég ekki meira í bili. jú alveg rétt ég þarf að gera einhverjar 5 skýrslur í moli helvítis og já þetta eru svona frekar stóóór verkefni. einstakilingsbundin of course og bara frekar suckie eitthvað.

ég er um þessar mundir að kynna mér lifnaðarhætti einbúanna í tíbet svo ég geti tekið þeirra atferli mér til eigin eftirbreytni. mjög meðvituð og útpælt hugsun á bak við það eins og þið eflasut getið gert ykkur í hugarlund.

ég er búin að komast að því að ég er haldin einhverskonar uppskriftarfíkn. ég á skrilljónir af uppskriftum en samt elda ég svotil aldrei, hvað þá baka núorðið. mér finnst það ýkt leiðinlegt. ég eeeeeeelska að baka. veit hins vegar ekki alveg hvaðan sá áhugi kemur. áhugi, held ég ætti frekar að orða þetta sem einhverskonar áráttu. hmm já fannst þetta bara eitthvað svo appropriet hugsun þar sem ég er jú svona að finna hinar og þessar uppskriftinu á netinu um þessar mundir.

jæjja

uppskriftirnar bíða sem og jólin. og drjólinn. nei hann bíður nú reyndar ekki.

hey ég er búin að komast að því að ég sökkkkkka í svona dagatalsgerð. eð aþannig eikka. hlutirnar eru allaveganna ekki að ganga eins smoothly eins og ég hafði nú vonast til. en nína. I WILL SURViiIiiVE hey hey

Friday, November 18, 2005

áhugavert?

ég var á leiðinni í tíma í morgun og varð mér þá borið til eyrna lítið nokk sem FYRSTA JÓLALAGIÐ. eða þúst þetta var fyrsta jólalagið sem ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að heyra. Eflaust búið að byrja að spila þau miiiklu fyrr ég er bara að segja að .... ok. þið fattið

ummmm.....

æ já

WHITE STRIPES á sunnudaginn. ég og nína erum vægt til orða tekið farnar að finna fyrir smá spenning leiða upp hrygginn. Kannski eru það annars bara harðsperrur í bakinu. maybe

svo næstu helgi(semsagt eftir þessa hahahha) þá eru það blessuðu furðulegu snillingarnir í Sigurrós sem stíga á stokk.

magnað.

alveg hreint

hvað er annars málið með að blogga? skrifa um tilgangsleysið sem líf manns byggist á og virkilega búast við því að aðrir hafi áhuga á því.

ÞAÐ er magnað. pffff

farin að skila Hamlet ritgerðinni minni. ohhh ég ess so dullehh

Wednesday, November 16, 2005

gúrkutíð

það er bókstaflega allt að verða kreisí í skólanum um þessar mundir. endalausar ritgerðir og verkefni og fyrirlestrar og bara jón og gunna.

svo er víst eitthvað svona late time halloween party um næstu helgi. en það er samt svona meira eitthvað grímuballa dæmis stemmari einhver. mér líst svosum mjög vel á það nema þá hvað ég er að vinna á sunnudaginn. og líkt og fyrri færsla gefur til kynna þá vil ég jú síður vera drekkandi smekkandi. ooooog svo er náttlega alltaf gaman að vera á bíl fyrst mann getur. hehe

ummm ég átti semsagt að segja árna hvað mig langaði í að utan. semsagt eitthvað sem hugur minn girndist. og aldrei þessu vant var ég bókstaflega *blink*. ég seriously veit ekki um neitt sem mig langar í. allt. eða ekkert. thats my motto (i dunno, just felt so appropriet) hahahah
en já. mig langar audda bara í staupglas merkt áfangastað hans. og svo bara veit ég ekki. i like the element of surprise, og þar sem ég get ekki átt von á slíku frá árna í sjálfu sér then i´m not really putting my hopes to high.. :)

akkúrat núna er ég að reyna að vera ýkt klár og setja saman einhverja alveg hreint hrút meandi leiðinlega ritgerð saman um Hamlet. allar fagrar hugsanir og hvatningaróp velkomin *sniffsniiiiiiiiff*...

ég er hætt að láta mig dreyma um bíl(held að það sé betra að láta sig ekki dreyma um óorðna eða verðandi hluti). ætla bara að flytja til ítalíu og hjóla alt sem ég fer, og um leiið minnast péturs í fagurri grafarþögn í einhverju skógarjaðrinum einhversstaðar í kúlúsúkk héraði þarna einhversstaðar. ammm fallegt mun það verða án nokkurs vafa.

Never pick a fight with an ugly person, they´ve got nothing to loose.
--Robin Williams

VARÐ að setja þetta inn. held að þetta muni geta kitlað kannski eina tvær ef ekki þrjár hláturtaugar þarna einhversstaðar úti.

á borðinu hamlet bíður
á meðan þungur tíminn líður,
í mínum huga hann er ekki fríður
kannski þá heldur ákveðinn og blíður

but heyyyy thats just me aight

Tuesday, November 15, 2005

--Ef þú stendur frammi fyrir tveim leiðum, veldu ætíð þá erfiðari--

er einhver sem horfir á the Cut ? ok "gellan hanna" þessi miss Elizabeth. goddamn it. hún fer bara OF MIKIÐ í taugarnar á mér. get ekki útskýrt þertta neitt frekar. en amm gellan pisses me off. þeir sem fylgjast með essu HLJÓTA að vita hvað ég er að tala um. (örlítil tjáningarþörf á kantinum hérna)

byrjuð á myndinni. jááááá er ekki alveg viss með hvernig þetta á eftir að koma út. er varla hálfnuð eins og staðan er í dag. stend í smá svona material crisis at the moment en JÁ það er aukaatriði ;)

það er einhver umræða um grímuball næsta laugardag á meðal staffsins. og um leið og mig langar alveg ómótstæðilega mikið að langa að fara, þá langar mig það ekki. aþþí ég veit að leiðinni verður síðan haldið niður í bæ. og það er ég ekki alveg að meika. er bara orðin ýkt djammlaus(is that a word?) eftir síðustu helgi. er ég bara eitthvað skrítin. what. is. up?!

ravis. árni og allir hinir rafvirkjarnir eru að fara til Madrid um helgina. í boði fyrirtækisins. ravis. i wanna go there. þeir eru víst að fara á eitthvað skuggalegt hótel með massa sundlaug á þakinu og ég veit ekki hvurn andkotann bandskotann. ætla að taka svona rétt rúmlega mínútu í það að vera alveg hreint skuggalega abbó.

like i´ve said before, það eru allir eitthvað að fokkast útí útlöndum. hvað er málið með það?

uuuuu það er módel teikning á fimmtudaginn. (já er eiginlega bara að setja eitthvað hérna inn. óháð því hvort það er áhugavert eður ei. your baaaad:P) amm magnað.

vinna um helgina. kannski þessvegna sem ég er svona fokkalega óspennt fyrir því að jammast þá. er komin með of mikið leið á því að vera þunn í vinnunni. gerir daginn mun erfiðari en hann þarf að vera. for no particular reason. or ..? hmmmm thats an interresting pælingó

hey! karen var samt ýkt heppin á lau! Hildur æði gammér einhverja þrettánþúsund króna skó. aþþí að ég komst í þá en ekki hún. omg. hún vildi frekar að ég fengi þá og notaði þá heldur en að hún hefði þá og þá bara til að láta þá rykfalla í skápnum heima hjá sér. she´s an angel among us the others. this is the way to my heart. buy me shoes hahahhahahhahha no not really. en já ég fór semsagt út á ljúfa lífið í nýjum skóma og var það eitt og sér nóg til að bjarga kveldinu
já held að ég hætti bara hérna. fair enough

sæt þykir lyktin úr eigin rassi
hef ákveðið að enda þessar spekingslegu hugsanir á þessum viskudropum. og er ykkur velkomið að velta fyrir ykkur boðskapnum, kannski-ef þið eruð í stuði-þá deilið því endilega memmér;)
ok. farevl hilsen, chao, adiosamigasinasosasss...? aiiiight
-pís át hómís-

Monday, November 14, 2005

jammmmmma mar

jelló
karen er o so sprækur að vanda.
skellti mér út á Laugardaginn ásamt anítu elskunni og henni Hildi kjellu. það var svosum ágætt. fórum í eitthvað súrt partí þar sem ekkert bjargaði mér náttlega nema þá bollan sem virðist hafa horfið furðu fljótt oní minns. crap. the rest u can kind of figure out yourself aight. fórum niðrí bæ nátlega og pitt stoppin voru í raun bara tvö glaumbarinn og svo gaukinn. (vil síður taka þessar tvær mínútur á boomkikker inn í myndina). þetta er samt ótrúleegt alltaf tekst kareni að troða sér uppá einhverja saklausa poolspilara og draga fólk og fleiri inn í eitthvað svona pool dæmis gaman gaman. það var samt magnað. versta var að í hvert sinn sem manni gekk vel þá var hent í mann drykk, sem og ef illa gekk þannig að ég var heldur betur veeeeel í því þegar að ég loks koom heim.

sunnudagurinn aftur á móti var ekki alveg jafn ánægjulegur. jú því að ég lá uppí rúmi. greinilega í einhverri DAUÐANS þynnku. og amms gatr ekkkert gert. gat ekkert borðað því ef ég sá mat þá hreinlega fann ég fyrir ælunni í hálsinum, nema þá bara því ég hafði ekkert étið. æ long story short: the sunday SuuuuuCKED.

er að vonast til að fara að geta byrjað á nýrri mynd. komin með striga. liti og vantar núna bara að vera til í að koma viðfangsefninu frá mér. hyggst reyna að nota daginn í dag í það. jeiiiij.

jólin koma jólin koma sem og jólaprófin mín ÞRJÚ sem eru víst óhjákvæmileg. dææææs. my life is so hard on me.

ans. tysk man. luuuuuvely

Thursday, November 10, 2005

che che che che che check it ááááát all u napoleon dynamite LOVERS out there. aight;)

framtíðarplön:

  • þegar ég dey kemur grein um mig í blaðinu og farið verður gróflega yfir ævistörf mín. sem mun án nokkurs vafa þekja heila opnu.
  • segjum, tuttugu árum, eftir dauða minn mun verða opnað safn til að heiðra minningu mína og öll mín verk.
  • vera metin að eigin verðleikum.
  • eignast penge penge penge (eins yfirborðkennt og það hljómar:P)
  • en ef þetta gerist ekki þá vil ég fyrst og fremst læra að vera sátt með það hlutskipti sem fellur mér í skaut. hvert svo sem það kann að vera.

eins raunsætt og þetta hljómar allt saman;););););)

anorexia. amms . svona er sú súpuskálin---

---viljiði gera mér þann greiða að kíkja á þennan andskotans viðbjóð!!! get varla ímyndað mér að fólk kjósi sér svona lífstíl. eða þá leyfi umhverfinu að hafa slík áhrif á sig að það kjósi að drepa sig svona á jafn hægfarinn og aumkunarverðan hátt. djöfulsins viðbjóður mér líður illa af að horfa á svona lagað.

anita er komin aftur til landsins. *gleðigleði* ásamt litla kút. sem þýðir að ég get loksins farið og gefið honum stórt (velkominn í heiminn) knús. einungis rúmlega fjórum mánuðum of seint. jeiiij. en amms. ég á pantaðan tíma í dag (hvað er með það?!:P) og já hún semsagt ætlar að skipta þessu einhvern veginn á milli mín og jóa. dont ask me. i have no words. þannig að ég geri ráð fyrir að hitta á móðurina ungu á eftir. hvað er annars málið með usa. mér finnst allir vera að fara þangað eða koma þaðan eða bara bara bara(kemur þetta tuð í mér:). en HEY þetta er alveg satt. það eru allir að gera eitthvað skemmtilegt við líf sitt. nema ég. mín helsta skemmtun er americas next top model á miðvikudögum. and what an exitement that is - DAMN, i live a sucky life.)

en já ætla að hripa nokkur orð um kjarval niður áður en ég fer í hel*** myndlistartímann. sem er ekkert skemmtilegur lengur. ekkert frekar en nokkur annar tími hérna.

æ vá maður.

have fun in the imagined sun. pís át hómí is

Wednesday, November 09, 2005

yes. sona eretta víst bara

mér er ýkt illt í míne malle. búin að vera að kasta upp og eitthvað svona tilgangslaust aumingjalegt shit. eða svo segir. þetta er ekkert smávegis óþægilegt. búin að vera með bölvaða velgju og hef svo til enga lyst. og já þetta er ekki það sem ykkur dettur eflaust fyrst í hug takk fyrir kærlega :P;)

ummm. ér að fara á hvítu strípurnar. ef fleiri hafa hug á að skella sér 20 nóv ENDILEGA verið í bandi. "i´m thinking of my doorbell...." aiiiight

ummm. sims er skemmtilegur leikur. var húkt á þessu örugglega í fleiri klukkutíma síðastliðinn sunnudag.

fór í pool í gær. og svo í kaffi með gömlu góðu sveifinni. það var aldeilis magnað. hey mig langar að vinna í debenhams. hún er alltaf að fá endalaust af einhverjum prufum og shitti.

já hey ég fer að vinna á kofanum um mánaðarmótin. finnst það helvíti magnað. losna unan kvöð NK.

farin bææ

Wednesday, November 02, 2005

plataði nínu memmér uppí háskóla í gær.
nei ég er ekki farin að huga að áframhaldandi námi heldur þá var verið að sýna einhverja spanjóla mynd. frííííítt. betra en fokking alþjóðlega kvikmyndahátíðin. þannig að við fórum að sjá ýkt góða mynd sem ég veit ekki einu sinni hvað heitir. en góð var hún. hið sama er ekki beint hægt að segja um FO***ng veðrið á þessu skítapleisi! ég þurfti að vefja treflinum mínum um mig eins og einhver grannyisma dott com til að fyrirbyggja lungnabólgu og eyrnabólgu. that. was not so good. eða þúst mér leið svosum ekkert illa. en já nína getur vitnað til um það að ég var jú reyndar hálf goofy á því:)

annars þá ætla ég að skella mér í leikfimi. nothing that soothes you like that..

(????????? i dunno man. hungry, must be the reason)

bling hómís

Tuesday, November 01, 2005

spurning

af hverju í ósköpunum gerir maður sumum hluti sem maður vildi síst að kæmu fyrir hina sömu aðila?

af hverju virðist ég þjást illilega af þessum heimska sjúkdómi?

og af hverju kann ég ekki að leiðrétta mistökin sem mér tekst í sífellu að koma í kring?

stundum þoli ég ekki sjálfa mig!!!

akkurru?

skilikki. ætla að skipuleggja mannfræðimöppuna mína. aþþí það er svo klikkaðslega gaman eitthvað. pís át all homies around the wúffwúff