Hvaða hvaða hvaða
alfeilis margt búið að gerast að undanförnu (hóst!).
vinna á fös og sun. Fínasta afþreying bara.
Skrapp á kynninguna í Borgarleikhúsinu á lau með henni Auði. Reyndar hafði ég svo til engan áhuga á neinu þarna nema þá kynningu listaháskólans. Sem og ég fór og spurðist fyrir um. Fékk að skoða möppur og fékk leiðsögn og alles. Mjög svo ... opinberandi ... (?). heh. en jamm fór þangað og fór svo þaðan. Búin saga.
Um lau kveldið var það svo bara vídjó fílíngur heima hjá Nínunni. Ég og árni komum okkur vel fyrir í sófanum hjá dömunni með fangið fullt af kóki, snakki og sælgætindum. jess þetta kvöld voru margar hitaeiningar innbyrðar. Kvöld hitaeininganna bommbommbommbommmmm...!
En já annars hef ég ekkert frekara að segja. Jú hvernig læt ég. Er búin að vera að hanga hjá Dísunni í tíð og ótíma núna síðan í dag og get sagt með sanni að hellere stuð er búið að vera á okkur dömunum. snökkuðum um margt og ekkert oooog borðuðum BOLLU heheh það var feitt en gott takk mús:D (þakka sökum míns eigin peningaleysis en skjellibjallan smellti samt á mig tómat, burger og bollu... að ógleymdu kókinu...)
HAHAHHAHA þetta hljómar kannski ögn furðuleg samsetning....
eeeeeeeeeeeen nú fer að líða að sumri og sem fyrr get ég ekki beðið. Nema hvað, í þetta skiptið er ég full tilhlökkunar varðandi skelduna góðu og vænu og fínu og ljúfu og krúttlegu. Með öllum sínum kostum og .... já nei það eru engir ókostir...
Ákvað að smala inn nokkrum frekar þekktum nöfnum sem komin eru á lista fyrir næsta sumar::
FRANZ FERDINAND (UK)
PLACEBO (UK)
SIGUR RÓS (ISL)
THE STREETS (UK)
TOOL (US)
ROGER WATERS OPFØRER DARK SIDE OF THE MOON (UK)
eeeeeen svo koma mun fleiri þegar nær dregur sumri.
Gaman að segja frá því að ég er tiltölulega nýbúin að uppgvötva gæði hljómsveitarinnar Jethro Tull... Gummi lánaði mér disk sem er heldur betur búinn að standa undir sínu YEAH!. eeeeen svo hef ég ekkert meira um það að segja nema þá bara YEAH. oki karen know your limits aight
en já þetta var stutt yfirlit síðastliðna daga...
(hvað er annars málið með mig? er farin að sofna um miðnætti og jafnvel fyrr, sef alveg til morguns og er samt DAUÐþreytt þegar ég vakna. óháð því hvenær ég vakna. FURÐULEGT ALVEG...er einhver læknir sem getur greint mig með einhvern sjaldgæfan sjúkdóm sem ég get kennt þessu um....??? come out come out wherever you are,,,)
hey! fór á mbl í dag (arndís u were there) og skellti mér á stjörnuspá liðinn
í mínu mestasta sakleysi. Smellti mér inn á hitt á þetta uns ég rakst á ...ÞETTA. hvað er málið?? Til svokallað hrylligskort? hversvegna ekki bara að hafa þetta í stjörnuspáslýsingunni eða hvað það nú heitir.. erum við of heilög til að þola þennan (jahh) grimma uuu hreinskilnisdæmus eitthvað. hahahaha ohh hvað við getum verið fötluð eitthvað. Þetta flokkast semsagt undir svokölluð "hryllingskort"....æjæjæjæjæjjjjj ég grét af hlátri damn. this is harsh! versta er að það er allt til í þessu. ég meina ég ER vælugjörn og þetta og hitt. EN á hinn bóginn er mér alveg sama því sona er ég. Leave it or love it:);)


