æjj hef ekkert að segja. en var samt á netinu svo ég ákvað að hripa niður nokkrar línur.
-Hey dísa ég prófaði að signa mig inná etta myspace en hérna ég átti enga mynd af mér sem var ásættanleg eftir að þú hlóst að my "naked" profile mynd. Og fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um þá er það mynd af mér þar sem ég virðist jahh nakin, BUT I'M NOT!!! bara svona koma því á framfæri. en já fann enga mynd svo ég nennti þessu ekki lengur og hætti í miðjum klíðum.
uuu já lærdómurinn á ekki við mig. Klárlega ekki. Er búin að vrea að reyna að lesa heimspeki í dag, en það er eins og höfuðið á mér sé innstimplað á föstudagsfílinginn sem og þennan ÓÞOLANDI sumarfíling hérna fyrir utan. Sól. Núna. i could just die. Vá en pirrandi.
Var að leiða hugann að því að tíminn líður svo ógnvænlega hratt, ég verð komin á hróaskeldu áður en ég veit af, með sígó og bjór og lítið ferðaútvarp í botni áður en ég veit af. Auk þess sem ég mun eiga afmæli úti og kem þar af leiðandi nýbökuð tvítugsdama frá DK. eitt lítið vúhúúú fyrir því.
Er nokkuð ákveðin á því að þegar ég fer að heiman þá kaupi ég. Mar er alltaf að frétta af fólki sem er að lenda í skít útaf leigukjaftæði og já ég nenni ekki einhverju svolleis skítadæmi.
Er samt eitthvað að pæla með skuldbindinguna á bak við það. Usss bara að vita það að maður væri að kaupa íbúð myndi vera hræðilegt(að sumu leyti). Svo ég vitni nú í hana Önnu Reynars þá; "kaupi ég ekki íbúð því að um leið og ég er búin að því, þá er ég búin að festa rætur"
EN ef maður kaupir íbúð og leigir hana síðan út á meðan maður er ekki á landinu. æææjj kann ekkert á þetta kjaftæði og hugsa að ég leyfi bara tímanum að leiða í ljós hvað ég geri.
--þó svo að karen sé audda með eitthvað á hreinu;)
hmmmm iðnskólinn í haust málið? fatahönnun. Ég hugsa allaveganna að það saki ekki að prófa það, finna hvort "ástríðan" er enn til staðar (i know it is, er bara að sannfæra sjálfa mig upp á nýtt.)
Handritið hennar nínu gengur svona líka glimrandi og erum við báðar ornar svo spenntar að það hálfa væri heilagt, karen strax farin að vinna að hugmynd að mynd sem hægt væri að nota... segi frekar frá því seinna.
þetta verður djammlaus helgi eins og svo margar aðrar undanfarið, lærdómurinn mun eiga hug minn og hjarta alla leið að útskriftinni vonandi. Þann dag sem ég fæ þessa asnalegu ljótu hvítu húfu mun ég gráta af gleði yfir að hafa ekki rotnað á þessum skólabekk, en um leið verða ánægð með að ljúka þessu loksins.
Og til þess að vitna í hana Nínu í þetta skiptið:
"best 4 years of my life, huh" .... reynið að skynja haldhæðnina!! hahaha
umm já, er eila orðin þurrausin í bili.
Árninn minn á ammli í næstu viku og er karen í algjörum kúk yfir því útaf því að þá er ég á fullu að læra undir þýskupróf næsta föstudag. já það er fimmtudagurinn sem er hans dagur. Ekki bara þýskupróf, skriflegt heldur já auuuuuðvitað er MUNNLEGT líka. Gúúúúúlp. gæti alveg eins drullað uppá bakið á mér núna strax. Hef samt á tilfinningunni að það reddist, en er samt drullu stressuð. kúmbæjj ja mæ lord(relaxation, or suhin)
það er svo GOOOOTT veður
ætla að ég heimspeki bókina mína, fara á limminu og dansa nakin á framnesveginum.
Jááá ljúfa líf ljúfa líf