áhrifaríkt, en endist samt voða stutt ef maður pælir í því
við vitum af allri eymdinni í heiminum en gefum okkur samt aldrei almennilega tímann í að þakka fyrir það litla sem við eigum. Hvert sem við lítum sjáum við tómleg augu ungra barna sem þrá það sem við eigum þó svo að þau viti ekki einu sinni hvað það er sem við njótum. Við öll vitum hins vegar af eigin auðæfum og auðlindum og það er svo sárt að hugsa til þess að í stað þess að syrgja þá eigum við að gleðjast yfir því að hafa ekki hlotið þetta hlutskipti í lífinu. Af hverju hefur engum dottið í hug einhver töfralausn til bjargar öllum óskapnaðinum sem er þarna við líði??
Þegar ég var yngri átti ég það til að taka slíka hlui illa inn á mig og skildi virkilega ekki hversvegna í ósköpunum allt fólkið þarna úti fékk ekki matinn og allt það frábæra sem við hér á vesturlöndunum höfum til dæmis fengið að njóta, og vitaskuld fór ég til þess sem var sá vitrasti á sínum tíma;) pabba. Tala nú ekki um þegar maður átti að borða matinn sinn sem var ekki það skemmtilegasta.
"Hvað með öll börnin sem fá ekki það sem þú hefur?" Var hann nú vanur að sgja nokkrum sinnum, og auðvitað sat ég og melti þetta. Eftir dágóða stund sagði ég honum vinsamlegast að leyfa þeim að fá matinn minn því að ég þyrfti hann ekki, væri orðin södd og auk þess fyndist mér fiskibollur ekki neitt sérstaklega góðar.
Þetta er eitthvað með öll börn hafa eflaust gert á einhverju stigi uppvaxtar síns, skipað foreldrum sínum að senda börnunum í afríku matinn sinn og fengið þetta þvílíka samviskubit yfir því að njóta þessara allsgnægta en eins og fyrr segir þá endist það nú yfirleitt svo voða voða stutt.
Eins og með mig akkúrat núna. Ég skrifa þessa færslu ífullkominni einlægni og allur pakkinn en eins og ég segi þá mun þetta ekki angra mig neitt á eftir.
Sem er kannski bara gott þegar að maður pælir í því. Manns eigin áhyggjur ættu kannski að nægja eða ekki eða kannski vá hvað þetta er ruglingslegt allt saman. Til hvers erum við að horfa uppá þennan viðbjóð ef ekki til þess að gera það sem í okkar valdi stendur til að reyna að breyta ranglætinu sem allir búa við. Eru það ekki almenn mannréttindi. úff þarf að fara að kynna mér svona dótarí, er á einhverjum rightesnesss path í augnablikinu.
Annars er lítið að ske. jú einn kennarinn okkar er tík í wonderwoman outfitti. Eða þúst þannig lagað. Sumsé two faced tík frá little pretty place called hell. Talar við okkur stelpurnar í hópnum , sérstaklega okkur yngri, eins og við séum þroskaheftar eða illilega vangefnar. "Svona gerir maður ekki!" og ekki bara við mann í einu lagi heldur hátt og snjallt svo að allir viti nú hvað maður er heimskur og glataður. Í síðasta tíma missti nú ein konan sig við hana illilega og þær öskruðust eitthvað á, jííís the drama. Þessi kennari gerir nefnilega aldrei mistök og þó svo að hún hefði gert ein þarna þá neitaði hún harðlega að viðurkenna þau og þá kom Gunnhildur the great hehe og bara benti henni vinsamlegast á að það væru fleiri sem gerðu mistök en aðeins við heimsku nemendurnir hennar. Vitaskuld gat kennarinn ekkert sagt við því og á meðan á þrumuveðrinu stóð sátum við allar hinar og reyndum. tek fram REYNDUM af besta megni að láta sem þetta hefði ekki áhrif en við vorum allar hálf brosandi að innan, komin tími til að einhver stæði uppí hárinu á wonderwoman hahah. Vona bara að Gunnhildur lendi ekki í veseni útaf þessu , því að sú kjellan ætlar með þetta lengar. ALL THE WAY eins og hún orðaði það,. DAMN the woman has got some spunk heheeh. (ekkki þannig spönk, heldur spunk u know SPUNK....o whatever)
Er semsagt bara uppí skóla að hangsa og datt í hug að henda inn stuttri færslu , hahahaha STUTTRI. vá æjj æjj æjj.
held að veturinn bjóði upp á blogg. hvað annað gengi?
Hef of mikið af vitleysu í gangi hérna inni (banka á hausinn) og hef trú á því að vinirnir þoli aðeins svona og svona mikið af henni hahahaha.
Helgin verður vonandi sem þæilegust ætla að taka ALVARLEGT jammajamm á þetta á laugardaginn svo að kveldið í kvöld verður eflaust rólegt. eða þúst það segi ég hver veit. Ég og arndís komumst að því að bókfærslan skiptir engu máli, því það eru bara þrjú ög sem litið er á í köttinu um áramótin svo að ég held að ég sé ekki að fara að vera aaaalveg eins dugleg og ég hélt að ég þyrfti að vera. Má alveg skrópa pínu smá pínu í þessa tíma júhúúúú
auk þess sem bókfærslu kennarinn er karlemba á karlrembusterum.com.
Nei svona án nokkurs gríns maðurinn er eitthvað skrítinn. Allir alltaf að kreista upp einhver fliss og hlátur eða eitthvað á meðan feministarnir ég og Arndís erum orðar alelda af pirringi. ooooof fyndið þegar maður pælir í því. Hér koma nokkrir vel valdir punktar sem hann hefur látið flakka:
-"Konur eiga ekki að hlaupa, líkami þeirra er einfaldlega ekki byggður til þess"
"eigum við semsagt ekki að stunda íþróttir þá eða??"
-"Elli og Stína leggja inn 20.000 króinur á reikninginn þeirra, við vitum nú samt öll hver sér umað koma með peningana"
WHAT?!?!?!
og fleira í þessum dúr, auk þess sem hann geriri í því að láta man´ni líða asnalega. "Karen lestu þetta" ok ekkerrt mál. en æjj æjj úps gerði vitlaust. Í stað þess að segja manni bara hvað maður er að gera vitlaust þá les hann dæmið aftur en bara hægar eins og maður hafi ekki náð því í fyrsta sinnið eða maður sé eitthvað súper seinn COMMON "eeeelliiiii ooooog stíííínaaaa leeeee....." u get my point..
semsagt erfitt að mæta í tímana. Þarf að sýna skilning og þolinmæði víst, eða eitthvað svoleiðis, what ever that is.
NÓG KOMIÐ. æla að gera eitthvað gagnlegt eins og að lesa bloggin hjá öðrum eða eitthvað.
luuuv and pííís homies hehe
-karen

