In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Friday, October 20, 2006

ég þoli ekki

þegar það er alveg overwealmingly mikið að gera hjá mér. klukkan 12 þetta, klukkan 14 þetta, klukkan 18 þetta, klukkan 20 þetta.
æj ég dett algerlega úr stuði eitthvað. Og ofast nær enda ég á því að sleppa einhverju svona ónauðsynlegu af því að ég nenni oft ekki þessu stressi sem fylgir. áætlanir, isss ekki mikið fyrir þær. kannski er þetta samt bara þreytan að tjá sig í augnablikinu, kannski ég hnupli mér einum kaffi er í miðbæinn kemur og taki smá svona raketta í rassgatinu á mér dæmi.
kannski.

ohh vá ég er ekkert smávegis þreytt eitthvað.

en já í dag er stór dagur því hún Nína kona á afmæli. vúhú. til hamingju með það stúlka góð.
(ef að hún les þetta þá hahahahahahhahah)

annars þá vita hinir bara af því.

ummmm er að fara að taka strætó, jeiiij. hata strætó og já er reyndar alvarlega að íhuga bílakaup eftir áramót. Mar veit náttúrulega aldrei með mig EN eins og ég segi þá er þetta allt á byrjunarstigi. sem hlýtur að teljast til flakks í höfðinu á mér.
allaveganna ætla að drulla mér af stað, busy day ahead of me, god damit.

Thursday, October 12, 2006

í kjólinn f. jólin

er að reyna að plana það svona hvort að ég geti nú ekki farið að koma mér í fokking kjólinn, þó ekki sé nema f. jólin. Keypti mér kort í baðhúsið og sé fram á púl í þrjá mánuði. Mér til mikillar ánægju, ótrúlegt en satt. Löngu kominn tími til að ég gerði eitthvað í þessu uppsöfnunar, forðabúrs vandamáli líkama míns. uss uss. Auk matarvenjanna, EN ég egt svosum gengið í þau mál síðar. Núna er það formið hehe.

Jámm er greinilega búin að horfa aaaaaaaalltof mikið á Dr. Phil undanfarið. Feita fólkið í Ameríku að gráta yfir vandamálum sínum og vigtarerfiðleikum, damn "aldrei skal ég verða svona" er nú yfirleitt það fyrsta sem mér dettur í hug. Kommon 150 kíló er nú svooooolítið mikið og samt tekst fólkinu að lifa í afneitun og láta eins og allt sé í fokking gúddí vúddí. ótrúlegt.

Já og svo var ég að borða 6 brauðsneiðar áðan og á erfitt með að hreyfa mig sökum þess. Semsagt hef eiginlega ekki staðið upp síðan ég tróð þeim ofan í mig. MAN aldrei aftur er það eina sem ég get hugsað. SEX SNEIÐAR. það er nú ekkert sérstaklega lítið. deijjm.

Annars er ekkert planað svosum f. kveldið. Jú Rokktóberfest er reyndar í gangi og möguleiki á að maður skelli sér á gamla góða gaukinn. Recapture the spirit, or suhin:) Gamli góði gaukurinn. LIfi hann hurrey hurrey hurrey

Tuesday, October 10, 2006

god damn. i´m an item

já þá er það formlega á hreinu. karen er í sambandi. hluti af pari, heild, ástangin og hamingjusöm og bara já já allur pakkinn. Í Desember er ég sumsé bókuð á eitthvað bölvað jólahlaðborð með Árna, semsagt sem kellingin hans. *kjánahrollur*

"karen komdu, þetta verða bara rafvirkjarnir og konurnar þeirra(hamana ha? kona ég ha neinei)"
"uu veit ekki alveg hvort mig langi það neitt sérstaklega held að mér liði bara hálf kjánlega(annar kjánahrollur)"
"karen komdu bara þetta verður fínt, góður matur og við þurfum ekki einu sinni að vera neitt lengi... bara svona halda uppá.."
"jólin?"
"aha einmitt"
"halda uppá jólin með fullt af einhverjum sveittum rafvirkjum sem ég þekki ekki neitt borðandi síld og fleira góðgæti?"
"jááá OG mér.." (FINE ! býst við að þetta fylgi með pakkanum harna)

já karen sumsé búin að láta plata sig á eitthvað jólahlaðborð í Desember.

vúhúú hóst hóst hóst

en að öðrum málefnum. Skólinn er að gera mann körreisí. Ég er að spá í að falla bara í bókfærslu, nenni þessum tímum svona mest lítið auk þess sem ég er komin með ýýkt lélega mætingu þar. usss and whatever, I don´t care.
uuu próf í fyrramálið sem ég á reyndar að vera að læra undir en er semsagt ekki að gera af því að ég er jú hey hér að skrifa um tilgangsleysi mitt. vúbbídú. Er samt búin að kikka aðeins yfir þetta þannig að ég er svona getting there ha hummm...

Er strax byrjuð að velta fyrir mér hvert skuli haldið næsta sumar og í hvað maður eigi að eyða því í að þessu sinni og ég og arndís erum að hallast að ýmsum skemmtileg heitum. Skrifa um það shitt seinna.

Annars þá erum ég og árni (meira svona ég , og árni bara kinkar kolli og segir já heheheh) að pæla í að skella okkur til Írlands, skella okkur á eins og eitt stykki hopp í vor ef við höfum efni á. Hann náttla að fara eflaust til Madrid þannig að maður veit aldrei hvernig þetta fer. Írland er samt næsti viðkomustaður á óskalistanum. Já og kannski Ítalía í sumarskóla næstasumar. En það er allt enn óákveðið þannig að hvur veit hvur veit:)

er búin að vera eitthvað voða slöpp og asnaleg núna upp á síðkastið og er ekki frá því að kvefið sitji enn sem fastast í mér. nag dabit. En það er samt allt í góðu.

VETRARFRÍ um næstu helgi. frí á fimmtudag og föstudag minnir mig og skelfing er ég fegin því. smá svona ekta lærdómsfrí þar sem maður gerir ekki annað en að læra og lesa og sauma og læra . vúhúú. Auk þess sem þetta er fríhelgin mín þannig að það verður án nokkurs vafa tekið á því um næstu helgi. THUMBS UP.

bið að heilsa. luv frommm mííí