In case of boredom emergency..plz read below..

WET YOUR WHISTLE - Many years ago in England, pub frequenters had a whistle baked into the rim or handle of their ceramic cups. When they needed a refill, they used to blow the whistle to get some service.

Wednesday, February 21, 2007

óbeinar reykingar

Var að tala við eina uppi í vinnu sem þjáist af astma og er með fáránlega lélegt ónæmiskerfi, grípur allar pestir, og það er hægt að rekja þetta beint til óbeinna reykinga foreldra hennar. Á meðan önnur ólst einnig upp við rekingar en ónæmiskerfið hennar hreinlega styrktist eða eitthvað. skrítið.

Var að koma úr sundi, magnaður og hressandi andskoti. Skelltum okkur í laugardalslaugina sveif og ég, og tókum etta með stæl. Fórum í rennibrautina og eitthvað, massa stuð á gellunum, gátum samt ekki fengið okkur púlsu á eftir sökum auraleysis. Og kortaleysis af minni hálfu. EN bætum úr því seinna meir. Þar verður næsta partí. pulsupartí. hahahaha ég er svo funkily funny.

uuuu var að fá mér grjónagraut. interrested?

1 bolli grjón
2 bollar vatn
1-1/2 l mjólk
salt og vanilla

YUP YUP

ok segi frekari fréttir af hinu ætíð spennandi lífi mínu síðar.

karen

Sunday, February 18, 2007

MAN i feel like a woman

alltaf jafn gaman að láta koma sér skemmtilega á óvart, og það tókst árna að gera áðan þegar drengurinn mætti með þennan líka æðislega vönd. ég alveg úti á þekju, og þunn í þokkabót. Vissi ekki einu sinni að það væri konudagur sé út í það farið. En vöndurinn er sætur og það er hann líka.

Skelltum okkur í Stúdentakjallarann í gær og kom það skemmtilega á óvart. Ölvunin gríðarleg hjá háskólaliðinu, og meirað segja sov mikil að manni leið hálf kjánalega með bjór númer tvö á meðan fólk var að rúlla um gólfin með appelsínugularhárkollur og kasta blöðrum á milli sín. Minnti mann á eitthvað útbrunnið sýruflipp. En það var nú hægt að hafa gaman að þessu. stöldruðum samt stutt við. Komum aðallega fyrir tónlistina og tilbreytinguna. Leiðinlegt til lengdar að hanga alltaf á sömu pöbbunum að hitta alltaf á sama liðið og þetta var svona skemmtilegur útúrdúr.

Er búin að vera að skoða flug til parísar. helvíti dýr andskoti en vonandi þess virði.

Hey já man það núna þarf að hringja í......HAHAHAHAH who cares

Hvað er annars málið með ofát? ég skil þetta ekki alveg, ég borða þónokkuð oft yfir mig og get svarið það ég er eins og gullfiskur. Mig verkjar í magann en samt þegar ég syndi framhjá borðinu aftur þá er ég alveg "ummm langar í svona og svona og" þetta er FÁRÁNLEGT hahaha ég er að drepast í maganum núna. Borðaði tvær bollur áðan. Svona feitar djúsí bakarís bollur. já neinei ekki eina heldur TVÆR ! mér líður eins og bolta í augnablikinu. Kringlóttum bolta, held að ég komist ú rugby boltann á eftir. Myndfræðilega séð.

Djöfull líst mér vel á listfræði. Er nokkuð ákveðin í að skella mér í það nám í vetur í hí víhíííí HAHAHA þetta var svona "bad joke" sponsored by; karen. tjank u thank u

ætla að drulla mér aftur í sturtu.

karen

Saturday, February 17, 2007

Svona er nú það

Skrapp á þónokkrar kynningar í dag ásamt henni nínu gæsku. Tókum strætó upp í Borgarleikhús og þar talaði ég aðeins við eina ef ekki tvær gellur úr Myndlistardeildinni. Leist fanta vel á þetta. Þaðan lá leið okkar í Hásólabíó þar sem HÍ var til húsa ásamt fulltrúum frá Dönskum skólum. Mikið fjör mikið gaman.
Fyndið að fara á svona kynningar. Maður hittir alltaf ólíklegasta fólkið. Eins og til dæmis verðandi föðurinn og stúlkuna hans, Palla vin Árna, og Bjarna og Kötu og eitthvað andskoti skemmtilegt lið bara.

Ég er svona farin að hugsa alvarlega í sambandi við nám vetrarins oger með augastað á þrem kostum.

Eftir allt dæmið ákváðum við að chilla yfir mynd með nammi og sígó og varð myndin The Devil wears pravda fyrir valinu. Magnaður andskoti.

ummmm hef samt eila ekkert að segja

...jú bíddu vinnan, það er mjög gaman í vinnunni. Mjög skemmtilegt og já hérna áhugavert starfsfólkið hahaha. En amms spes bara. Virkilega góður mórall þarna og já bara mjög fínn vinnustaður. Er ekkert að efast um að ég ætti nú að geta þraukað þarna fram að hausti.

Gærkveldið var skondið. Kveldið í kveeld verður kannski skondið KANNSKI ekki. Fer eftir því hvort ég nenni að píla mig uppúr sófanum og gera eitthvað (sem þýðir eins og ætíð, eitthvað í tengslum við áfengi). Er ennþá að ákveða mig...

HAHAHAHAHAHA þetta er fáránleg færsla. enjoy

Thursday, February 08, 2007

Anna Nicole Smith

deijjm, fyrir dygga áhorfendur E! þá er þetta sjokk.

ég er semsagt dyggur áhorfandi E!

Tuesday, February 06, 2007

Ground control 2 major..

jæja nú er þetta leti ár mitt senn hálfnað og ég get með sanni sagt að svona sinnuleysi gengur ekki fyrir mig til lengdar. er bara ekki að meika það, og þar af leiðandi stefni ég á nám í haust. Eða allaveganna eitthvað í haust. Verð að vinna uppi í Hátúni núna fram að hausti og líst svona líka ljómandi á það, og ef allt gegnur vel gæti ég átt von á að komast í Lhí í haust, en ef það gerist ekki, þá væri ég vís til að íhuga möguleikann á námi utan landsteinanan. Er búin að hafa langan tíma til þess að íhuga þetta og er ekki frá því að senn komist ég að endanlegri niðurstöðu. Skal kannski posta hana þegar að henni kemur hahahaha. æjj æjjj æjjjj...

Er búin að vera óendanlega dugleg að mála og teikna og krota undanfarna daga og er virkielga spennt fyrir einu sem mér datt í hug að gera. útfæra eina hugmynd ... æjj vil ekki segja hérna EN þetta verður vonandi magnað. já ok kannski ekki magnað en þetta verður eitthvað. flott eður ei. i like the idea. ok þetta verður flott *ranghvolfi augum og færi hendurnar frá lyklaborðinu* já hey *og hlæ*

hey marí sendi mér einhverja seríu sem heitir 4400, aðra seríuna nánar tiltekið og þetta er eitthvað sem ég hef aldrei séð áður eða hvað þá heyrt um. En já þetta er um eitthvað framtíðarfólk sem breytir fólki og sendir það til baka til þess að gera eitthvað og já semsagt VERY special vægt til orða tekið, en ég sumsé asnaðist til þess að horfa á þetta og er algerlega HÚKT, ýýýýkt spennt eitthvað, eða þúst ekkert ÝKT spennt hahha en samt eitthvað spennt.

whatever.

bið að heilsa jeres, hej hej karen