Mesta vöruúrvalið
er í hagkaupum, ef einhver fékk nú ekki þeirra indælis bækling um daginn. Stenst auðveldlega samanburð við smærri tímarit og auglýsingabæklinga á borð við Marie Claire og Vouge. Klárlega.
Ég er alveg að verða gráhærð á manni nokkrum í Kastljósinu. Þetta er gaurinn úr Gettu betur. Hann er nú alveg þvílíkt mikið í fjölmiðlunum í kjölfar kosninganna og er það nú alveg skiljanlegt, en guð minn eini og góóóði hvað hann fer í mínar FÍNUSTU. Er ekki frá því að hann heiti Sigmar. Man það samt ekki alveg. Hann er svo óendalega ásakandi við alla sína viðmælendur. Sem er kannski eðlilegt eða eitthvað í íslensku fréttaefni, en grínlaust hann hendir síííífellt fram einhverjum spurningum í ásakandi tón. Reynir að kjaftstoppa viðmælanda sinn og svo þegar að það tekst ekki eða hann fær ekki svarið sem hann vildi fá þá spyr hann aftur.. og aftur Í ALVÖRUNNI. Hann var að reyna að fá Ingibjörgu Sólrúnu áðan til þess að hafa skoðun á skítnum sem umhverfisráðherra er búin að maka sig út í og Ingibjörg benti honum góðlátlega á að það væri ekki hennar að setjast í dómarasætið varðandi málefni sem hún þekkti ekki allar hliðar á. Eðlilega annað væri barnslegur hroki. Samt hélt gaurinn áfram. Hann spurði hana ÞRISVAR, gauuuur. og þegar hann var búinn að spyrja í síðasta skiptið (af ÞREMUR) hélt hann pennanum ógnandi á lofti eins og máli sínu til áherslu. Mér líður alltaf svo kjánalega þegar að hann er í sjónvarpinu. Það er eins og gaurinn haldi að hann sé hinn næsti Larry King, leiðrétting, LArry king er viðkunnalegur náungi. Hann er það ekki. Og þó, get reyndar lítið um það sagt það sem ég þekki hann ekkert. En það sem ég þekki til hans úr sjónvarpi er pirrandi. Pabbi er farinn að hætta að nenna að mótmæla mér þegar ég tjái mig í hvert skipti sem andlitið á honum birtist á skjánum. HAHAHAHAH hann bara kinkar kolli. Og þar sem mér finnst gaurinn vera bögg sé ég enga ástæðu til að sitja á því
my opinion on the subject
-amen
ummm lítið að frétta svosum. slow weekend. er ekki að nenna einhverju skralli þessa dagana. Er að vonast til að detta inn í tiltektar fíling á næstu mínútum, right like thats gonna happend. en já það er svona það mesta.
Ég og sveifan mín kæra förum nú bráðlega að huga að flugmiðakaupum fyrir Interrail skrallið okkar. Kominn smá fiðringur í mann varðandi ferðina. Þetta verður klárlega stuð.
daddaraaaa ætla að segja þetta gott í bili. og já hey MOMO, SÍÐBÚIN AFMÆLISKVEÐJA, VÚHÚÚ ÞRÍTUG SMÁSTELPA, LÍST LJÓMANDI VEL Á. OR SUHIN, KNÚS, KAREN
thats it folks


3 Comments:
oh boy can´t wait to get drunk... er að verða búin að læra yfir mig hehe... en þú trúir ekki hvað mins var að gera af sér hihi...
by the way þetta er svava... þessi talva er e-h skrítin hérna
HAhahah, takk.
Er sko búin að byrja lesa 3svar þessa færslu, en sé fyrst núna kveðjuna til mín :D
Takk fyrir pakkann frá ykkur.
momo.
Post a Comment
<< Home